Aðalvalmynd

Klukkan

Prófíll

Leyndó

Tenglar

Flottir munnsvipir

Það eru alltaf ákveðnir líkamshlutar á hinu kyninu sem maður tekur eftir fyrst. Þegar ég horfi á karlmann og finnst hann sætur þá kíki ég á handleggina. Ef mér finnst þeir ekki eins og þeir eiga að vera þá getur mér alveg þótt viðkomandi ekki flottur...

En það sem kemur á eftir handleggjum eru munnsvipir.. ég elska flotta munnsvipi. Ég held að ég gæti alveg fallið fyrir einhverjum bara út af munnsvipnum.Mér hefur t.d. alltaf þótt leikarinn Barry Pepper mjög sætur bara út af munnsvipnum hans.

Hann er bara með svo hrikalega flottan munnsvip. Þegar ég horfi á stáka í dag þá er ég farin að horfa mjög mikið á munninn á þeim.

Hvað er málið með þetta, af hverju er einhver einn líkamshluti sem við pælum mest í? Hvað er það sem manni finnst svona hrikalega flott? En sem betur fer þá erum við ekki öll eins og leitum ekki eftir því sama....

P.s. tvö blogg á þremur dögum... allt að gerast Svalur

Lykkjufall og ellimerki

Orðið lykkjufall er búið að vera eitthvað ótrúlega mikið í umræðunni síðustu viku í kringum mig. Ég hef alltaf verið svolítið hrædd við þetta orð, eins og svo mörg orð þá geta þau haft mismunandi merkingu og hver túlkar fyrir sig. Þessi umræða byrjaði um daginn þegar ég hljóp í forföll í textílmennt. Nemendur mínir voru að prjóna og þegar einhver missti lykkju þá fékk sá og hinn sami að fara í frjálst. Ég get því miður ekki státað mig af myndaskap í prjónaskap. Ég sem sagt kann ekki að taka upp lykkju. Ég komst að því að mér finnst samt alveg gaman að prjóna. Ég fékk að prjóna aðeins fyrir systur mína, en auðvitað klúðraði ég því big time og henni fannst ég ekki skemmtileg og þurfti að laga lykkjurnar eftir mig. Einn nemandi minn er búin að vera í vandræðum með lykkjuföll síðan ég var í forföllum. Textílkennarinn er búin að koma til mín og ræða um þetta við mig. Þetta orð lykkjufall er búið að óma í eyrunum á mér, þegar ég heyri það þá dettur mér alltaf eitt í hug... og trúið mér það tengist ekki prjónaskap.

Í síðustu viku þá fannst mér ég finna fyrir ellimerki hjá mér. Ég borðaði rúgbrauð með síld og mér fannst það gott. Mér hefur aldrei þótt síld góð.. en ég ákvað að prófa það um daginn vegna lítils úrvals í vinnunni hjá mér.... og mér líkaði vel..... já mér finnst ég hafa tekið eitt skrefið í viðbót í að verða fullorðin....

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Gagnasafn