Álfkonan
Flottir munnsvipir
Það eru alltaf ákveðnir líkamshlutar á hinu kyninu sem maður tekur eftir fyrst. Þegar ég horfi á karlmann og finnst hann sætur þá kíki ég á handleggina. Ef mér finnst þeir ekki eins og þeir eiga að vera þá getur mér alveg þótt viðkomandi ekki flottur...
En það sem kemur á eftir handleggjum eru munnsvipir.. ég elska flotta munnsvipi. Ég held að ég gæti alveg fallið fyrir einhverjum bara út af munnsvipnum.Mér hefur t.d. alltaf þótt leikarinn Barry Pepper mjög sætur bara út af munnsvipnum hans.
Hann er bara með svo hrikalega flottan munnsvip. Þegar ég horfi á stáka í dag þá er ég farin að horfa mjög mikið á munninn á þeim.
Hvað er málið með þetta, af hverju er einhver einn líkamshluti sem við pælum mest í? Hvað er það sem manni finnst svona hrikalega flott? En sem betur fer þá erum við ekki öll eins og leitum ekki eftir því sama....
P.s. tvö blogg á þremur dögum... allt að gerast ![]()


Hlakka til að tjútta með þér næstu helgi músin mín!!!!!!
Knus og kram Steffí